Útskrift!!
26.11.2007 23:40:27 / Ylfa

Útskriftarráð að fríska upp á skammdegið..

Bridget Jones in Thailand:



Kemur þú með okkur og Bridget til Thailands?..... 4 dagar til stefnu til að ákveða sig ;)

» 6 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 16:33:47 / Ylfa

Jæja þá er komið að því!!


Ferðin sem lang flestir kusu var til Thailands, þannig að við förum til Thailands í útskriftarferðina í vor!!! :) Farið verður í kringum 13. maí og komið heim í kringum 27.maí (plús/mínus tveir dagar). Gist verður í Bangkok í tvær nætur svo allir fái tækifæri til þess að versla og láta sauma á sig útskriftardressið ;)

 

Hér getið þið séð allar upplýsingar um ferðina - http://ferd.is/Downloads/Thailand/sologsandur.pdf

 

Þið fáið út næstu viku til þess að ákveða hvort þið ætlið með eða ekki og svo verðið þið að senda okkur lokasvar hvort þið ætlið og hvað þið ætlið að taka marga með ykkur í seinasta lagi á föstudaginn 30. nóvember kl. 12:00 að hádegi.

 

kveðja,

Útskriftarráð


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 12:24:15 / Ylfa

Kynning á útskriftarferðum!

Sælir kæru nemendur,

Nú er komið að því sem allir hafa beðið eftir! ...að fá kynningu frá ykkar frábæru nefnd á tilboðum fyrir útskriftarferðina. Tilboðin eru sko ekki af verri endanum! Sitjið kyrr eftir MAVI (fyrir þá sem ekki eru í MAVI þá verðum við í stofu 101) á fimmtudaginn kl. 9:50 og gefið okkur 15 mínútur af ykkar tíma til þess að sjá hvað við höfum upp á að bjóða. Vonumst til að sjá sem flesta ;)

kveðja,
Útskriftarráð

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.11.2007 23:38:35 / Birkir

Myndir!

Smá innbrot á aðganginn hans Birkis á bloggið, honum er vonandi alveg sama

Hvað með myndir frá vetrarhátíðinni?

Lumar enginn hér á slíkum? 


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.10.2007 10:54:55 / Ylfa

Áfangastaður og hótel hafa verið ákveðin ;)


Ásgeir Davíðsson, eða Geiri á Goldfinger, er himinlifandi með ferð sína til Dubai á dögunum. Hann gisti á hæsta hóteli í heimi, sjö stjörnu Arabaturninum.

„Þetta er flottasta hótel í heimi og þú kemst aðeins að því með limmósínu eða þyrlu, sem við og gerðum," segir Ásgeir sem var alveg heillaður af staðnum. Hann segir að í Dubai sé dýrt að lifa, að minnsta kosti hjá þeim hjónunum.

„Ég held ég hafi verið að borga 500 kall fyrir kókglasið og ennþá meira fyrir vatnið! Þá kostaði nóttin þarna ríflega 100.000 kall og við vorum bara í venjulegu herbergjunum. Ég veit hins vegar af Íslendingum sem voru í svítunum þarna og þau voru að borga 2 milljónir á mann fyrir vikuna! Enda þorði ég ekki að líta á reikninginn þegar við tékkuðum okkur út, ég straujaði bara kortið með lokuð augun!"

 Svo er bara að vera nógu dugleg að vinna fyrir útskriftarráð og safna sér inn pening ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 11:03:18 / Ylfa

meiri stuð

Ég er ánægð með þessa umræðu sem er búin að myndast í sambandi við útskriftarferðina. Það virðast flestir vera nokkuð spenntir fyrir Brasilíu sem er hið besta mál. Ég vil bara minna ykkur á það að hugsa vel málið hvort þið viljið ekki örugglega koma með því þið hafið til 14. sept að ákveða ykkur því þá förum við í útskriftarráði að leita af tilboðum hjá ferðaskrifstofum og þurfum við þá að vera komin með tölu á þá sem ætla.

Okkur datt í hug að fara í útskriftarferðina í kringum 12. maí. Við skilum nefninilega BS ritgerðinni 9. maí og svo er útskriftin ekki fyrr en 7. júní þannig að við höfum í rauninni mánuð þarna á milli. Þetta var gert svona í fyrra og okkur finnst þetta ofsalega sniðugt. Þá er þetta ekki að trufla vinnu hjá fólki og svona. Eini gallin er að endurtektarprófin eru þarna í lok maí en reddast það ekki?? Þá leggiði bara ennþá meira á ykkur til að sleppa við endurtektarpróf ;)

Hvað segiði um þetta??


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 11:25:07 / Ylfa

Útskriftarferð 2008

Jæja kæru HR-ingar!

Nú er komið að útskriftinni okkar og viljum við fá að sjá áhugan fyrir útskriftarferðinni. Við í útskriftarráði erum komin með nokkrar hugmyndir og viljum endilega fá ykkar álit! Veriði sem duglegust að tjá ykkur því eftir 2 vikur (14. september) verður tekin ákvörðun hvert verður farið og þurfum við þá að vera komin með tölu á hreint svo við getum pantað ferðina sem fyrst svo hún sé sem ódýrust.

Komið svo með skoðanir ;)

 

Okkar tillögur:

  1. Brasilíu til Gogga, hann benti okkur á Fortaleza og Rio de Janeiro
  2. Dubai þangað sem Haukur stakk af
  3. Morroco
  4. Thailand
Hvað finnst ykkur???

» 29 hafa sagt sína skoðun

12.08.2007 20:35:44 / Hrund

Tuborg útilegan

Hvernig er sumarið búið að fara með Hringana? Jæja þá er bara komið að því...

Ætla ekki allir að mæta????


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 13:07:32 / Hrund

þetta gengur ekki!

Jæja heyriði.

Það verður víst að afskrifa þessa ferð. Góður punktur hjá fólki að það er mjög líklegt að það sé of kalt... En svo er líka önnur ástæða (SORRY ég var bara að vita þetta núna, annars hefði ég aldrei sett fréttina á undan inn)  við erum að verja stefnumótunarverkefnið okkar þessa helgi s.s. fös 11.maí og lau 12.maí. Þ.a.l. myndi helmingurinn ekki vera fær um að komast í þessa ferð!

Nú er pæling, viljiði gera eitthvað á laugardeginum saman? Þetta er m.a. Eurovision helgin... (svo lengi sem við komumst upp úr undankeppninni)  en svo gætum við náttla líka frestað þessu og farið saman í skemmtilega útilegu í sumar eða eitthvað?? :)

 Einhver viðbrögð við þessu?


» 7 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 10:44:32 / Hrund

HRingar að djamma saman? :) 11.maí

Jæja ágæta fólk

Ég vona að próflesturinn sé ekki alveg að fara með ykkur... en þetta er nú að verða búið :)

En jæja hvað finnst ykkur... er ekki kominn tími til að Hringarnir fari að taka djamm saman?? Helgin eftir skil á stefnumótunarverkefninu er hún ekki fín??
Við getum auðvitað hist og tekið þetta venjulega djamm hér í RVK...eða þá t.d.

HRingarnir saman í Hvammsvík
föstudaginn 11.maí

Afþreying fyrir hópa

Í Hvammsvík er hægt að veiða, spila golf, róa kajak, grilla, spila fótbolta, fara í gönguferðir, tína krækling í fjörunni, fara á hestbak, slæpast, leika sér, tjalda eða bara slappa af í sveitakyrrðinni og njóta fagurs umhverfis.

 

 

Ég hringdi í mann sem sér um aðstöðuna og þeir voru með 3 tilboð í gangi fyrir hópa!

 

Tilboð nr.1: Afnot af grillaðstöðu og tjaldsvæði – 750 krónur á mann
 
Tilboð nr.2: Afnot af grillaðstöðu og tjaldsvæði, veiðileyfi og golf – 2450 krónur á mann 

Tilboð nr.3: Afnot af grillaðstöðu og tjaldsvæði, , veiðileyfi og golf, og sigla á kajak – 3150 krónur á mann
(smá fróðleikur, einungis kajakferðin sér kostar vanalega 4500 krónur)

 

Jæja hvað finnst ykkur? Er einhver stemming fyrir þessu? og ef svo er hvaða tilboð myndi fólk vilja taka?

 

Kveðja

Hrund :)

 

p.s. Hvammsvík er í Hvalfirðinum svo það er ekki svo langt frá okkur...


» 13 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 21:11:47 / Arna

Nú er að styttast í fjármálaprófið

Held það sé kjörið að við stöndum saman og hjálpumst að í þessu.
Þetta verður ekki jafn létt og MAUS.

Business Plan

klárt mál


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 17:03:15 / Arna

easy...peasy.. japa(ne)sy

 

 

Maus var barnaleikur!

Mikið hefur verið hringt í Arney og kvartað yfir þessu. Hún sagðist vera áhyggjufull og væntanlega hugsa sinn gang fyrir næsta próf sem hún leggur fyrir. Harðstjórin

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.03.2007 01:19:56 / Arna

MAUS

 

þunnur

 

Svona líður okkur öllum!


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.03.2007 18:26:07 / Hrund

Afmæli

Stórmerkilegur dagur í dag, (fyrir utan það að nú eru allir búnir að vera grillaðir af spurningum í Vörustjórnun hehe) en þá á hann Ingólfur Ragnar afmæli í dag :)

Til hamingju með daginn ;)

 

IMG_2051.JPG
Palli "afmælisbarn" & Ingó afmælisbarn


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.03.2007 22:48:47 / Palli

Myndir ?

Takk fyrir síðast allir Bretlandsfarar :D ég var að velta fyrir mér þar sem ég sleppti myndavélinni hvort enginn ætli að setja inn myndir frá ferðinni á síðuna ? mér vantar nefnilega myndir í afmælisalbúmið?

 Bkv. Palli


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15